Eru allir á móti okkur?
6.1.2010 | 15:52
Mörgum fannst þegar skoðanakannanir á Íslandi sýndu 70% andstöðu við nýjasta Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar, væri slíkt afgerandi vísbending um þjóðarvilja. Ólafur Ragnar Grímsson forseti tók vafalaust tilllit til m.a. þessa.
Eftir að hann synjaði lögunum (rétt nefnd uppgjafarskilmálar) ráku fulltrúar ensku krúnunnar og enskra sósíaldemokrata hér á landi, upp ramakvein! Þarna voru að sjálfsögðu á ferð þau Jóhanna og Steingrímur ásamt undirspilurum þeirra. Auðvitað er kannski ósanngjarnt að telja þau sem fulltrúa erlendra stjórnvalda og líklega vilja þau bara öllum allt hið besta. En ég er örugglega ekki einn um að hafa það á tilfinningunni að þau eigi erfitt með að ganga af fullri reisn á meðal t.d. þessara þjóða (og þjóðarleiðtoga).
Eftir höfnun forsetans, hefur dunið á þjóðinni áróður, um hversu harkaleg öll viðbrögð séu erlendis frá. Össur var meira að segja "hissa" á því hve fljótt slík viðbrögð hefðu komið fram, honum var meira að segja svo brugðið að hann hætti við að fara í utanlandsferð. Spuni þessi virðist runninn undan rifjum stjórnarinnar og ekki er erfitt t.d. að lesa bloggsíður sumra þingmanna vinstri manna til þess að sannfærast um að svo sé. Hugsið ykkur, allt þetta þegar þau ættu að halda merki Íslands á lofti bæði leynt og ljóst, þ.e. persónulegum samskiptum við erlenda þjóðarleiðtoga sem og á meira opinberan hátt í samskiptum við erlenda sem og innlenda fjölmiðla. Nei, það er ótti og
skelfing sem er boðið upp á, í þeirri von að allir lyppist niður með þeim í einum takt.
Ef einhverjum fannst 70% vera afgerandi niðurstaða, hugsið ykkur þá að 90% (2341/2601) lesenda Wall Street Journal og 90.5% (ekki uppgefið hversu margir) lesenda Guardian skuli vera á því að ganga enn lengra en nokkur Íslendingur hefur ennþá vogað sér í þessari deilu. Lesendur þessara blaða virðast vera nánast á einu máli um það að Íslendingar eigi bara alls ekki að borga eina einustu krónu vegna Icesave!
Ég hef engan heyrt halda því fram hér á landi að Íslendingar eigi ekki að bera sinn hluta af byrðunum sem hefur hlotist af Icesave. Verra er að fáir Alþingismenn (hvað þá ráðherrar) hafa bent á að auðvitað liggur ábyrgð þessa bankaklúðurs sameiginlega hjá þessum deiluaðilum, þ.e. ríkisstjórnum Íslands, Bretlands og Hollands, enda einsýnt að allir sanngjarnir menn munu að lokum komast að þeirri niðurstöðu.
Það væri snjallræði ef stjórnmálamenn landsins nýttu þetta andrými sem nú hefur skapast og vikju flokkspólitík til hliðar um stundarsakir. Mynduð þverpólitískan hóp sem stýrði samningum fyrir Íslands hönd í þessu máli. Einnig væri rétt að knýja á um að fá skipaðan hlutlausan sáttasemjara til þess að auðvelda ferlið.
|
Eiga Íslendingar að greiða? |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:51 | Facebook


andres
vikari
baldvinjonsson
gattin
ekg
emilkr
erla
ea
fannarh
vidhorf
tilveran-i-esb
gthg
gun
vinaminni
gudbjorng
hallurmagg
hannesgi
maeglika
hlynur
golli
islandsfengur
jonmagnusson
jonvalurjensson
jon-o-vilhjalmsson
jorunnfrimannsdottir
askja
kolbrunb
loftslag
altice
lydurarnason
magnusvignir
marinogn
morgunbladid
pallblondal
frisk
vertinn
ragnheidurrikhardsdottir
reynir
sigsig
sigurbjorns
sjonsson
stebbifr
svavaralfred
omargeirsson
hugsun
andrigeir
bergthorg
frjalshyggjufelagid
johannesthor
vala
vkb






Athugasemdir
Bergþór Ólason benti á þennan hlekk í dag. Þarna má horfa á viðtal Jon Snow á Channel 4 News við Steingrím Sigfússon fjármálaráðherra. Steingrímur heldur þar uppi vörnum og bendir m.a. á að lagaleg ábyrgð ríkissjóðs sé ekki fullkomlega skilgreind í þessu tilfelli.
Þetta var ágætt hjá honum og rétt að hann njóti sannmælis hvað það varðar. Vildi bara svo gjarnan sjá miklu meira af þessum málflutningi íslenskra ráðamanna.
Helgi Kr. Sigmundsson, 6.1.2010 kl. 21:05
Nú setur stjórnin þetta svo fram að ef við kjósum á móti icesave þá fellum við stjórnina það er ekki gott að þetta sé sett svona fram því þá þvingast margir til að kjósa með icesave til að stjórnin haldi velli sem sagt gegn sinni samvisku gagnvart icesave.
Sigurður Haraldsson, 7.1.2010 kl. 00:00
Umræðan hefur heldur betur snúist okkur í hag undanfarna daga. R'ikisstjórnin er í slæmum málum að reyna allt til að verja þennan ósóma sem lögin eru.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.1.2010 kl. 11:26
Nú virðast stjórnmálaflokkarnir hafa ákveðið að reyna að snúa bökum saman. Grunar samt að það sé grunnt á því góða og í raun staðfesti Steingrímur það á s.k. flokksráðsfundi VG á Akureyri um helgina. Auðvitað væri betra ef allir gengu saman í takt til varnar íslenskum hagsmunum. Æ fleiri eru einnig að kalla eftir sáttasemjara í deilunni.
Helgi Kr. Sigmundsson, 17.1.2010 kl. 15:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.