Enn heldur umfjöllunin áfram...

Allt virðist bera að sama brunni þegar óháðir aðilar (og sumir jafnvel málsmetandi) erlendis fjalla um stöðu efnahagsmála á Íslandi og meta þá leið sem íslenska þjóðin kaus að fara í Icesave deilunni. Merkilegt hvernig hlutirnir virðast geta breyst á einni nóttu.

Fróðlegt verður að fylgjast með viðbrögðum fjármálaheimsins

 Af hverju eigum við að treysta ráðgjöf þeirra sem bentu þjóðinni að fara í þveröfuga átt, ella væri voðinn vís? Er það fólk yfir höfuð hæft til þess að leiða þjóðina í þessum málum?

Nú eru þessir sömu aðilar farnir að berja bumbur sínar aftur og sækja að sjávarútvegsfyrirtækjum að þessu sinni (enda komnir í hálfgert þrot með helstu mál sín). Er ekki tímabært að spyrja gagnrýnna spurninga um leiðsögn þessa fólks, í þessu máli sem og vel flestum öðrum?


mbl.is Leið Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Egill Úlfarsson

Svo sannarlega. Þó fyrr hefði verið. Þá værum við nú að reyna að rífa upp fyrirtækin í landinu og létta byrðum á heimilunum og skjóta stoðum undir nýjar fjárfestingar og byggja upp hagvöxt. Sköpun í stað stöðnunar.

Sveinn Egill Úlfarsson, 19.4.2011 kl. 11:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband