Almannahagur?
30.9.2009 | 14:06
Ekki ætla ég að meta störf Ögmundar að sinni. Hann virðist hafa verið búinn að dusta rykið af áætlunum Guðlaugs frá því í fyrra og byrjaður að fylgja þeim nokkuð nákvæmlega. Eftir að hann hættir er eitt efst á baugi! Það er hagur almennings.
Margir hafa eðlilega áhyggjur af stjórnarsamstarfinu og hvað gerist ef því lýkur nú? Bið ykkur um að misskilja mig ekki, ég hef aldrei verið stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar eða þeirri hugmyndafræði sem þar svífur yfir vötnum. Hafa verður það í huga að ríkisstjórnin boðaði á dögunum aðgerðir til úrlausnar á gríðarlegum vanda heimilanna. Ef stjórnarsamstarfið springur verður það hörmulegt fyrir þá sem vonuðust eftir úrlausnum á þessu sviði. Þeim verður frestað enn um sinn.
Af þessum sökum var ég á móti því hvernig Samfylkingin hljóp frá borði í janúar síðast liðnum og eins ætla ég að harma það ef þessi ríkisstjórn fer frá hálfköruðu verki.
Að lokum ætla ég að taka undir með Ögmundi, þegar hann segir að líf ríkisstjórnarinnar eigi ekki að vera skilyrt útkomu Icesave málsins. Alþingi hefur þegar samþykkt ákveðna leið og henni á ríkisstjórnin að fylgja. Vilji hún það ekki þegar viðbrögð Hollendinga og Breta eru ljós, verður hún annað hvort að fara með málið aftur fyrir Alþingi og sætta sig við lýðræðislega niðurstöðu þar, eða segja af sér (sem væri slæmt sbr. ofanskrifað).
Áhyggjur þjóðarinnar og óvissan hafa aukist við afsögn Ögmundar.
|
Ögmundur segir af sér |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:12 | Facebook


andres
vikari
baldvinjonsson
gattin
ekg
emilkr
erla
ea
fannarh
vidhorf
tilveran-i-esb
gthg
gun
vinaminni
gudbjorng
hallurmagg
hannesgi
maeglika
hlynur
golli
islandsfengur
jonmagnusson
jonvalurjensson
jon-o-vilhjalmsson
jorunnfrimannsdottir
askja
kolbrunb
loftslag
altice
lydurarnason
magnusvignir
marinogn
morgunbladid
pallblondal
frisk
vertinn
ragnheidurrikhardsdottir
reynir
sigsig
sigurbjorns
sjonsson
stebbifr
svavaralfred
omargeirsson
hugsun
andrigeir
bergthorg
frjalshyggjufelagid
johannesthor
vala
willystef
vkb






Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.